jæja ef að ég er ekki einn lélegasti boggarinn í sögu
blog central þá veit ég ekki hvað! Það er náttúrulega alveg
hellingur að frétta af mér, tók mér skólapásu og er alsæl í minni
góðu vinnu í smáralind að selja brettaföt og sólgleraugu
ég
var náttúrulega á Akureyri allt jólafríið mitt og það var bara
alveg æðislegt! Gott að komast í fjallið og svona! Það var líka
tekið frekar vel á því í djamminu fyrir norðan og ég held að ég
hafi fyllt djammkvótann minn í bili því ég er komin með algjört
ógeð..já ég get svarið það. Við héldum stórglæsilega uppá tvítugs
afmæli Kötu okkar og leigðum Capone fyrir gelluna og vorum með
Hollywood party þar sem 50 cent, Marilyn Monroe, Johnny Depp,
Strumparnir, Ace Ventura, Deb úr Napoleon Dynamite og fleiri létu
sjá sig og vöktu auðvitað mikla lukku! Við stelpurnar lentum síðan
í allskyns ævintýrum að vanda, hittum Basshunter eitt
kvöldið og maður hjálpaði honum aðeins með tónleikana
Áramótaballið var líka snilld, Palli stendur alltaf fyrir sínu og
einhverra hluta vegna hélt ég að ég hefði týnt öllum lyklunum mínum
í Sjallanum. Þeir voru týndir í svona viku en komu svo í
ljós einn daginn þegar Síssa var eitthvað að vesenast í herberginu
sínu og fann þá
ótrúlegt hvar ég sting hlutunum stundum og
gleymi því svo bara. Síðan var ég líka svo heppin að vera stoppuð
af löggunni í bara almennt eftirlit og þá kom í ljós að
ökuskírteinið mitt er búið að vera útrunnið í maaarga mánuði.. ég
varð bara að gjöra svo vel að láta Síssu taka við akstinum og svo
reddaði ég þessu með að fara í ökumat daginn eftir sem var
náttúrulega ekkert mál og maður átti að vera löngu búinn að koma
sér í.. svona bara er maður gleyminn
Framundan er nóg að gera, mikil vinna og svo á auðvitað
að reyna komast í Bláfjöll sem fyrst. Planið var að fara í dag en
ég var svo sniðug að meiða mig í fótbolta á föstudaginn að ég komst
ekkert á bretti
Þess í stað fór Ágú litla og hjálpaði
frænkum sínum að læra fyrir stærðfræðipróf! já sko
mig!
Við horfðum líka á Kompás þáttinn um barnaníðingana og
mikið vildi ég óska þess að þetta lélega dómskerfi okkar væri ekki
svona glatað. Jájá dæmum alræmdan barnaperra í fangelsi, sleppum
honum svo bara út eftir smá stund og látum engan vita, og látum
hann svo fara vinna hjá tölvufyrirtæki svo hann geti haldið
áfram að perrast í börnum á netinu eins og hann gerði áður fyrr!
Geggjuð lausn! þetta er til svo háborinnar skammar að maður bara á
ekki orð.. það á að taka svona kalla og gelda þá. Læsa þá svo inni
þangað til þeir drepast. Svo var perrinn bara rosa Jolly að tala um
þetta.. hann var bara þunglyndur og átti veika mömmu þannig að hann
fór að fikta í litlum börnum en vissi samt að hann var að gera
rangt og biður svo bara núna bænir fyrir fórnarlömbum sínum, að
þeim líði ekki illa... hversu vangefinn er hægt að vera??
Hvað fer fram í hausnum á svona fólki?!? svo ekki sé talað um
Perrann í Byrginu sem þykist vera rosa fórnarlamb þegar hann er
búinn að misnota fullt af fólki og búið er að sanna helling á hann!
Svo segja sumir að þeir séu bara veikir..eins og það sé einhver
afsökun, auðvitað eru svona perrar kolruglaðir í hausnum og
snargeðveikir en með þetta þá hafa þeir nákvæmlega ekkert að gera í
okkar samfélag og bara ekki í þennan heim.
en vonandi fer þetta kerfi okkar fljótlega að hrökkva í
gang, alveg löngu kominn tími á það. Það er allavega frábært þegar
að fólk eins og þau sem standa á bak við þáttinn Kompás láta til
sín taka!
Ég sá fyrsta hluta undankeppni Eurovision í sjónvarpinu
í gær og manni var bara ekki farið að standa á sama.. bara svo ég
haldi áfram að hneigslast á öðru fólki, þá bara verð ég að segja að
ég skil ekki svona tónlistamenn sem dettur í hug að senda bara eitt
af sínum uppáhalds eða eitthvað í svona keppni og reyna koma þessum
rosa spes lögum sem enginn tekur eftir, í svaka keppni fyrir hönd
Íslands!? Mér fannst sum lögin alveg ágæt, en EKKI sem Eurovison
lög. Ég hélt að það væri löngu orðið ljóst að langflest Eurovision
lög sem ná einhverri velgengni hvort sem þau vinna eða ekki, eru
fjörug, með grípandi viðlagi sem maður fær strax á heilann og
hljóma svo á skemmtistöðum allt árið við miklar undirtektir.
Hvernig hefði það til dæmis verið í fyrra ef Ómar Ragnarsson hefði
komist með sitt hörmulega lag í keppnina?? Ísland hefði sent eldri
mann, skoppandi um sviðið og FLAUTANDI viðlagið!? það hefði verið
gert meira grín af okkur en var með Silvíu nótt, ég er alveg viss
um það. Ég hlakka til að heyra restina af lögunum, ég vona að við
sendum eitthvað gott út í ár, við eigum helling af góðum söngvurum
og eigum alveg að geta það. Reynum bara öll að kjósa það sem
við höldum að virki fyrir Eurovision keppnina!
Eitt enn sem ég ætla að deila með ykkur. Eins og við
vitum flest þá er öskudagurinn alltaf langskemmtilegastur fyrir
norðan þar sem börnin enda daginn, hlaðin heilu pokunum af nammi og
alskonar dóti.. en fyrir sunnan hefur það verið ansi lítið sem
krakkarnir fá..(miðað við fyrir norðan allavega). Mér þykir það
samt bara hrikalega asnalegt að í fyrra eða hittífyrra gaf
Skífan börnunum ekki einu sinni nammi heldur hef ég fyrir öruggum
heimildum að sjálfur Hreimur í Landi og sonum hafi veitt þeim þá
ánægju að krota nafn sitt á hendi þeirra með túss sem mjööög erfitt
var að ná af.. frábært!
einhver gömul poppstjarna krassar á
börnin sem flest vita örugglega ekki einu sinni hver hann er.
Ég ætla rétt að vona að þessi gamla hefð okkar íslendina sé ekki að
fara breytast í svona kjaftæðisrugl. Á öskudaginn er leyfilegt að
borða fullt af nammi, og mér allavega finnst að þannig eigi það
bara að vera. Þetta er jafn fáránlegt og að jólasveinarnir kæmu
alltaf grindhoraðir um jólin og gefðu börnunum gúrkur og banana.
Hvað væri þá gaman að þessu! Auðvitað eru þeir feitir og gefa manni
nammi, þessvegna hlakkar manni til þess þegar þeir
koma
´
jæja þetta er orðið gott í bili, endilega komið með
comment ef þið eruð sammála eða ósammála einhverju, eða bara
endilega kastið á mig kveðju!
Sjáumst

Johnny á Capone